Kannski þarf maður bara að bíða vorsins

Gott hjá Bjarna Benediktssyni að þjarma að forsætisráðherra varðandi stóriðju á Bakka. Vert er að nefna að vegtenging á Bakka kostar ekki undir 1,5 milljarði og nauðsynlegar hafnarframkvæmdir um 2 milljarða. Þegar stjórnvöld slógu af álver á Bakka var ljóst að verulegan stuðning þyrfti af hálfu ríkisins til uppbyggingar innviða þar sem smærri verkefni geta ekki staðið undir þessum fjárfestingum að fullu.


Stærstu boltarnir varðandi verkefni PCC liggja hjá stjórnvöldum  annarsvegar aðkoma ríkisins að innviðum(þar sem forsætisráðherran virtist hafa lítil svör) og hinsvegar við gerð ívilnunarsamnings við fyrirtækið. Við sem höfum verið að skrifa undir viljayfirlýsingar við stjórnvöld um uppbyggingu á Bakka höfum ekki sérstaklega góða reynslu af samstarfinu. Við tókum auðvitað eftir að verkefnið var ekki í fjárlögum og ekki var minnst á það þegar fjárfestingastefnan var kynnt. Auðvitað vona ég að stjórnvöld standi sig en því miður þá hræða sporin og kannski þarf maður bara að bíða vorsins.


mbl.is Tekist á um stóriðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svarið er nei

Verð að viðurkenna að því meira sem ég les tillögur stjórnlagaráðs því augljósara er það mér að þær geti ekki verið grunnur að nýrri stjórnarskrá. Umræða síðustu vikna hefur enn aukið á efa minn um að þær séu brúklegar.

Þá er það er það augljóslega á huldu hver áhrifin af því að segja já við fyrstu spurningunni eru. Enginn virðist um það sammála, ekki þingið eða fulltrúar í stjórnlagaráði.

 Ég mun því kjósa nei við fyrstu spurningunni. Enda virðist málið allt hið mesta óráð.


Flogið til Húsavíkur á ný

Í dag var hátíð í Þingeyjarsýslum þegar reglubundið áætlunarflug hófst aftur á Aðaldalsflugvöll. En þrettán ár eru síðan Flugfélag Íslands hætti að fljúga til Húsavíkur. 

Flug til Húsavíkur skiptir íbúana miklu máli. Það einfaldar aðgengi ferðamanna að svæðinu og  heimamanna að höfuðborginni. Það styttir ferðina til Reykjavíkur um tæpar þrjár klukkustundir miðað við að fljúga í gegnum Akureyri og lækkar ferðakostnað. Hingað kemur mikill fjöldi ferðamanna, innlendir sem og erlendir, og ferðaþjónustuaðilar bíða því spenntir.

Eigandi flugfélagsins Ernis sagði að til greina kæmi að halda fluginu áfram í vetur ef viðtökurnar verða góðar. Ljóst er auðvitað að uppbygging iðnaðar á Bakka myndi styrkja mjög grundvöll þess að áframhald verði á reglulegu áætlunarflugi á Aðaldalsflugvöll.

Kannski er áætlunarflugið merki um að fyrirtæki séu að átta sig á því að Þingeyjarsýslurnar verða á næstu árum eitt helsta vaxtarsvæði landsins.


Norðurþing rekið með 262 milljóna afgangi

Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2011var tekinn fyrir í sveitarstjórn 3. apríl. Í kjölfar sölu Norðurþings á hlut sínum í Þeistareykjum hefur efnahagur sveitarfélagsins tekið stakkaskiptum til hins betra. Ánægjulegt er að greiddar hafa verið niður skuldir á árinu 2011 um hundruðir milljóna.

En rekstrartekjur sveitarfélagsins, samstæðunnar, námu 2.409 millj. króna og rekstrargjöld 2.609 millj. króna. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld vour jákvæð um 451 millj. króna. Rekstrarniðurstaða ársins varð jákvæð um 262 millj. króna. Í áætlun var hins vegar gert ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu upp á 166 millj. króna.

Eignir samstæðunnar í árslok námu 7.300 millj. króna og skuldir samtals 5.911 millj. króna að meðtöldum lífeyrisskuldbindingum. Eignir umfram skuldir námu því 1.389 millj. króna samanborið við 733 millj. króna í árslok 2010.

Veltufé frá rekstri nam 146 millj. króna samanborið við 77 millj. samkvæmt áætlun ársins. Fjárfestingahreyfingar voru neikvæðar um 163 millj. króna. Ný lántaka á árinu nam 4 millj. króna og afborganir af lánum námu 440 millj. króna.

Heildar launagreiðslur og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu 1.539 millj. króna að meðtöldum breytingum á lífeyrisskuldbindingum.

Sveitarfélagið Norðurþing hefur frá efnahagshruni, seinni hluta árs 2008, lágmarkað framkvæmdir en að sama skapi lagt höfuð áherslu á atvinnuuppbyggingu á Bakka. Viðræður hafa staðið yfir við nokkra aðila og mun þeim verða haldið áfram á árinu 2012.

Staðreyndin er að fá sveitarfélög hafa viðlíka möguleika á vexti og Norðurþing. Gott væri hinsvegar að fá stjórnvöld sem hefðu raunverulegan áhuga á uppbyggingu orkufreks iðnaðar.


Álver á Bakka slegið af

Þessa dagana birtast fréttir þess efnis að ekki verði af álveri á Bakka. Engum kemur það lengur á óvart enda hefur það verið öllum ljóst sem að málinu hafa komið að samið var um það þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð að ekki yrði byggt álver á Bakka. Fyrsta vísbendingin um að þessu myndi verða var úrskurður Þórunnar Sveinbjarnardóttur um sameiginlegt mat á verkefninu á Bakka. Úrskurður sem samkvæmt Þórunni átti að tefja verkefnið um í mestalagi 2 vikur en stöðvaði í raun allar framkvæmdir í Þingeyjarsýslum í vel á þriðja ár. Sú stöðvun kostaði sveitarfélagið Norðurþing tugi milljóna og að lokum neyddist sveitarfélagið til að selja 90% af hluta sínum í Þeistareykjum ehf þegar formlegu samstarfi við Alcoa var slitið. Auðvitað til ríkisins sem sett hafði á hið sameiginlega mat.

Ofan á þetta hefur svo bæst stefna ríkisstjórnar um að friða Gjástykki sem auðvitað takmarkar það magn af orku sem fáanlegt er í verkefnið. Ekki virðist lengur möguleiki að flytja umfram orku tímabundið frá Kárahnjúkum til koma verkefninu á Bakka af stað, enn síður er aðgangur að umframorku í kerfinu til verkefnisins. En báðir þessir möguleikar voru upp á borðinu í árdögum álvers á Bakka. Enda hafa núverandi stjórnvöld engan áhuga á því að álver á Bakka verði að veruleika. Heiðarlegast gagnvart heimamönnum hefði verið að segja mönnum það frekar en að ýta verkefninu til hliðar á þennan hátt og kenna áhugaleysi Alcoa um stöðuna. Áhugaleysi sem við sem unnið höfum með Alcoa höfum ekki fundið fyrir.

Heimamenn eru auðvitað ekki hrifnir af því að álver á Bakka sé slegið af, almennt hefur verið góður stuðningur við byggingu þess. Byggt á því að 250 þúsund tonna álver skapar um 700 bein og óbein störf. Einmitt þann fjölda starfa sem svæðið hefur tapað á síðustu 15 árum. Talið er að íbúum í Þingeyjarsýslum myndi fjölga um 1000 að lágmarki við byggingu þess. Heimamenn hafa litið á rekstur álvers sem trausta kjölfestu á atvinnulífi svæðisins. Þeir hafa einnig vitað að með því myndu þau umsvif sem skapast við hagnýtingu orku í Þingeyjarsýslum verða í Þingeyjarsýslum.

Nú er hefur ríkið sem verið hefur okkar helsti samstarfsaðili varðandi byggingu álvers á Bakka slegið það af og ákveðið að orkan skuli fara til minni iðnaðarkosta. Heimamenn eru auðvitað ekki mótfallnir minni iðnaðarkostum og bjóða þau fyrirtæki sem vilja fjárfesta á svæðinu velkomin. Þessi stefnubreyting þýðir einfaldlega að ríkisvaldið verður að leggja umtalsverða fjármuni í uppbyggingu innviða svo sem vega og hafnaframkvæmdir á næstu árum.

Að lokum tel ég rétt að hald því til haga að enginn friður verður um virkjun orkunnar í Þingeyjarsýslu nema hún nýtist  til þess að byggja upp störf í Þingeyjarsýslum með þeim hætti sem stefnt hefur verið að síðastliðin áratug. Um það standa Þingeyingar sameinaðir.

Grein birt í Morgunblaðinu 16. september.

 


Vill að orkan í Þingeyjarsýslum verði nýtt til að byggja upp atvinnu á svæðinu

Hér birti ég viðtal sem birtist í Morgunblaðinu snemma í mars. Tel að viðtalið eigi erindi við fólk sem hefur áhuga á atvinnuuppbyggingu og baráttu fyrir byggð á landsbyggðinni;

"Jón Helgi Björnsson, formaður bæjarráðs Norðurþings, vill að orkan í Þingeyjarsýslum verði nýtt til að byggja upp atvinnu á svæðinu og breyta áratuga hnignun í vöxt. Á síðustu 15 árum hefur störfum í sveitarfélaginu fækkað um 32% og fólkinu um 15%. Jón Helgi er afar ósáttur við framkomu ríkisstjórnarinnar í málinu.

Við höfum í raun flutt út atvinnuleysið okkar, unga fólkið. Þessi þróun er auðvitað að mestu vegna fækkunar í hefðbundnum atvinnugreinum svæðisins, landbúnaði og sjávarútvegi. Fjölmargt hefur verið reynt til að snúa þessu við, og líklega er það helst ferðaþjónustan sem hefur heppnast vel. Þetta er hinsvegar þróun sem við sem samfélag sættum okkur ekki við eða viljum sjá áfram. Hver vill sjá allt unga fólkið flytja burt úr byggðarlagi?“ spyr Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga og formaður bæjarráðs Norðurþings af hálfu Sjálfstæðisflokksins.

Lengi hefur verið rætt um að leiðin til að snúa þessari þróun við sé að nýta orkuna á háhitasvæðunum í Þingeyjarsýslum. „Rekstur Kröfluvirkjunar sýndi fram á möguleikana sem gáfust með nýtingu á jarðvarma,“ segir Jón Helgi. „Árið 1999 stofnuðu Orkuveita Húsavíkur, Norðurorka og sveitarfélögin Aðaldælahreppur og Reykdælahreppur fyrirtækið Þeistareyki ehf. Tilgangurinn var að hefja boranir á Þeistareykjum til að rannsaka svæðið. Síðan þá höfum við borað sex djúpar tilraunaholur og svæðið er talið geta gefið rúmlega 200 megavött af orku, tilraunaholurnar sex gefa 45 megavött.“

 Árið 2005 keypti Landsvirkjun þriðjungshlut í félaginu og ári síðar var, að dómi Jóns Helga, gríðarlegum áfanga í baráttunni fyrir endurreisn í Þingeyjarsýslum náð þegar skrifað var undir viljayfirlýsingu um byggingu álvers Alcoa á Bakka. „Loksins var komið verkefni sem var af þeirri stærð að það gæti snúið við þeirri þróun sem við höfum séð á undanförnum árum. Verkefni sem myndi skila 500-800 störfum eða öllum þeim störfum sem tapast hafa á síðustu fimmtán árum.“

Vinnan gekk prýðilega

Unnið var skipulega eftir þessari viljayfirlýsingu en aðilar að henni voru ríkisstjórn Íslands, Alcoa og Norðurþing. „Vinnan við verkefnið gekk prýðilega, flest gekk upp. Sérstaklega það sem laut að orkuöflun á Þeistareykjum en svæðið reyndist sérstaklega öflugt og borholur góðar. Þá gengu sveitarfélögin frá sameiginlegu svæðisskipulagi á háhitasvæðunum sem gerði ráð fyrir orkuöflun á fjórum svæðum Bjarnarflagi, Kröflu, Gjástykki og Þeistareykjum. Allur undirbúningur gekk vel en auðvitað lagði sveitarfélagið mikið undir og var búið að leggja meira en einn milljarð króna fram í hlutafé og ábyrgðum að ógleymdum tugum milljóna til skipulagsmála.“

Jón Helgi segir allt hafa breyst á einum degi þegar Þórunn Sveinbjarnardóttir, þáverandi umhverfisráðherra, úrskurðaði að álver á Bakka þyrfti í sameiginlegt umhverfismat. Með því sneri hún við úrskurði Skipulagsstofnunar. „Ákvörðunin var augljóslega tekin til að verjast fylgis8leka yfir til Vinstri grænna og torvelda framgang málsins. Enda voru einungis fjórar af átta framkvæmdum inni í hinu sameiginlega mati og því ekki um neitt heildstætt mat að ræða,“ segir hann.

Úrskurðurinn setti vinnu við umhverfismat allra framkvæmdanna fjögurra, sem úrskurðurinn tók til, á sama tímaplan. Áhrifin á Þeistareyki ehf. voru að umhverfismat fyrir Þeistareykjavirkjun tafðist um tæplega tvö ár. Bein afleiðing af því var að ekki var hægt að bora frekari tilraunaholur til að sannreyna hversu mikil orka er á svæðunum en til stóð að bora holur á vesturhluta svæðisins sem hefðu, að sögn Jóns Helga, gefið mun betri mynd af því hversu stórt og öflugt svæðið er til orkuvinnslu. Vegna þess að ekki var hægt að sannreyna orkumagnið þá var m.a. ekki hægt að semja um orkusölu og afhendingu. „Þegar ekki er hægt að semja um orkusölu þá er erfitt að fjármagna framkvæmdir. Fáránleiki málsins var samt fyrst og fremst sá að þegar sameiginlega matið leit dagsins ljós var helsti veikleiki framkvæmdarinnar álitinn óvissa um orkumagn sem að mörgu leyti var afleiðing þess að ekki hefur verið hægt að bora tilraunaholur til að sannreyna orkumagnið. Þannig er málið eins og hundur sem eltir skottið á sér,“ segir Jón Helgi.

Hann segir stjórnmálamenn hafa nýtt sér niðurstöðu sameiginlega matsins til að færa rök fyrir því að ekki sé næg orka til stærri verkefna. „Það er hámark hræsninnar í ljósi þess að það er að hluta til hinu sameiginlega mati að kenna að upplýsingarnar um orkumagn eru ekki nægilega góðar.“

Jón Helgi segir Þórunni Sveinbjarnardóttur og Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, raunar hafa fullyrt á fjölmennum fundi á Húsavík að úrskurðurinn myndi ekki tefja verkefnið nema hugsanlega um nokkra daga. „Daginn eftir, þegar við héldum fast við þá skoðun okkar að úrskurðurinn hefði alvarleg áhrif á verkefnið, hringdu spunameistararnir í okkur og sögðu að við værum flón, við ættum að fagna úrskurðinum. Við sveitamennirnir klóruðum okkur auðvitað í kollinum þegar við höfðum fyrir framan okkur álit lögfræðinga sem fullyrtu að með úrskurðinum væri allt stopp. Hvernig átti að fagna því?“

Bara tæknileg hindrun

Kostnaður Þeistareykja ehf. fyrir vinnuna í kringum hið sameiginlega umhverfismat hljóp á tugum milljóna króna. Að sögn Jóns Helga vissu allir sem komu að þeirri vinnu að sameiginlega matið var bara tæknileg hindrun sett fram í pólitískum tilgangi til þess eins að koma verkefninu fyrir kattarnef. Meginkostnaðurinn við ákvörðunina liggi þó í töfinni sem þetta hafi í för með sér fyrir félagið. Tveggja ára töf á framkvæmdum kostaði félagið 200-300 milljónir króna, að sögn Jóns Helga.

„Eflaust finnst einhverjum þetta ekki miklir peningar í orkuiðnaði en öðru máli gegnir um eigendur Þeistareykja ehf. Tafir þessar hafa haft mikil áhrif á eigendur félagsins en þrjú sveitarfélög áttu meirihluta í félaginu. Þannig seldi Norðurorka fyrst sinn hlut í félaginu til Landsvirkjunar, væntanlega hafa þeir Akureyringar ekki séð sér fært að leggja félaginu til 60-70 milljónir á hverju ári meðan beðið er eftir að tæknilegar hindranir stjórnvalda væru yfirstignar.“

– Hvernig er þá staða Norðurþings?

„Hún var auðvitað ekki sérlega sterk. Sveitarfélagið var skuldsett og átti ekki gott með að leggja félaginu til 70 milljónir króna á hverju ári sem drottinn gaf. Sérstaklega ekki eftir að ríkisstjórnin ákvað að framlengja ekki viljayfirlýsingu við Alcoa um byggingu álvers á Bakka. Sú ákvörðun lokaði fyrir möguleika sveitarfélagsins til að fjármagna sig. Auðvitað er mun auðveldara að fjármagna orkuframkvæmdir þegar orkukaupandinn er í hendi. Þegar aðilar eru komnir í einhverja skógarferð með ríkisstjórninni í leit að orkukaupendum, þ.e. einhverjum öðrum en Alcoa, þá vandast málið við fjármögnun. Það grátlega við þetta var að einungis sveitarfélagið var bundið af viljayfirlýsingunni við Alcoa en ekki Þeistareykir. Það félag gat því leitað að orkukaupendum að vild, jafnvel þótt menn ynnu áfram með Alcoa.“

Rétt er að halda til haga að fulltrúar Norðurþings í stjórn Þeistareykja vildu að félagið færi í mál við umhverfisráðherra og fengi ákvörðun um sameiginlegt mat hnekkt. „En við fengum ekki stuðning til þess í stjórn. Kannski ekki skrítið að fulltrúar Landsvirkjunar hafi ekki verið spenntir fyrir því að fara í mál við eigenda sinn. Afstaða fulltrúa Norðurorku voru hins vegar vonbrigði. Mín skoðun er sú að við hefðum átt að hnekkja þessari ákvörðun fyrir dómi því ákvörðunin var röng gagnvart eigendum Þeistareykja.“

Á endanum varð sú ákvörðun ekki umflúin fyrir Norðurþing að selja frá sér stærsta hluta af hlut sínum í Þeistareykjum ehf. „Auðvitað var eini kaupandinn ríkið í formi Landsvirkjunar, sá aðili sem setti sveitarfélagið í þessa stöðu. Fyrir sveitarfélagið var það bagaleg staða að þurfa selja því tilgangurinn með þátttöku í félaginu var ekki fyrst og fremst að hagnast á því heldur miklu fremur að sjá til að orkan yrði nýtt á heimaslóð og það sem fyrst. En tæknilegar hindranir stjórnvalda settu sveitarfélagið í stöðu sem það hafði ekki efnahagslega burði til að verjast. Tæknilegar hindranir sem ráðherrar virðast stoltir af að setja upp fyrir lítil sveitarfélög sem eru að reyna af veikum mætti að snúa vörn í sókn.“

Hann segir nákvæmlega sama uppi á teningnum með Gjástykki sem ríkisstjórnin ákvað að friða. „Menn voru ekki betur að sér um svæðið en það að álíta að það væri allt í Þingeyjarsveit. Það virtist koma þeim á óvart þegar þeim var bent á að stærstur hluti Gjástykkis væru í sveitarfélaginu Norðurþingi. Það er sjálfsagt ekki ástæða til að vinna heimavinnuna sína þegar markmiðið er að takmarka orkuframboð til álvers í Þingeyjarsýslum.“

Þegar frumdrög að rammaáætlun um virkjunarkosti voru kynnt sveitarstjórnarmönnum á síðasta ári þá var ekki annað að sjá en Gjástykki væri einn af frambærilegustu kostunum, segir Jón Helgi. „Fjármálaráðherra sagði nýlega að beðið verði eftir niðurstöðum úr rammaáætlun um virkjunarkosti áður en farið verði í virkjanir í neðri Þjórsá. Hvers vegna á ekki það sama að gilda um Gjástykki sem hefur gilt skipulag sem gerir ráð fyrir orkuvinnslu á 2% af svæðinu? Sveitarstjórnir hafa takmarkaðan eða engan áhuga á friðlýsingu svæðisins enda vita þau sem er að markmiðið með því er að bregða fæti fyrir uppbyggingu iðnaðar á svæðinu. Hvað annað skýrir að þetta svæði sé ekki metið eftir niðurstöðu rammaáætlunar?“

Ekki hent fyrir borð

Eftir að viljayfirlýsing við Alcoa var ekki framlengd var gengið frá viljayfirlýsingu milli sveitarfélaganna Skútustaðahrepps, Þingeyjarsveitar, Norðurþings og ríkisins. Stofnuð var svokölluð NAUST-nefnd sem hefur það hlutverk að finna kaupendur að orkunni í Þingeyjarsýslum. Í henni eru fulltrúar sveitarfélaganna, Landsvirkjunar og ríkisins. „Við samþykktum að fara þessa leið eftir að iðnaðarráðherra hafði fullyrt við okkur að verkefnið með Alcoa ætti sömu möguleika og önnur verkefni í þessu ferli, þessum klára möguleika okkar til uppbyggingar yrði ekki hent fyrir borð.“

Sú nefnd átti samkvæmt viljayfirlýsingunni að skila áfangaskýrslu í maí á síðasta ári og svo átti að hefja samningaviðræður við þá aðila sem metnir voru fýsilegastir. Niðurstaðan kom í skýrslu í vor, þar sem verkefnið með Alcoa og bygging álvers á vegum kínversks fyrirtækis voru metnir bestu kostirnir. „Málið var hinsvegar það að seinni hluti verkefnisins, það er að semja við þessa aðila, varð að engu. Við vitum ekki hvort rætt hafi verið við þessa aðila af alvoru og höfum reyndar efasemdir um að svo sé. Í stað þess var settur á stað spuni um að Alcoa hefði í raun ekki áhuga á verkefninu, það væru bara starfsmenn Alcoa á Íslandi sem hefðu áhuga. Ég vona að heimsókn æðstu stjórnenda Alcoa í febrúar hafi fært stjórnvöldum heim sanninn um að áhugi fyrirtækisins á verkefninu er raunverulegur.“

Jón Helgi gengst við því að vera álvers8sinni „sem er auðvitað hræðilegt hlutskipti, eða þannig. Sérstaklega fyrir mig, líffræðinginn, sem hef nú frekar lítið þol fyrir lúpínu og sígrænum trjám.“

Hann segir menn í Norðurþingi óspart hvatta til að huga að öðrum möguleikum í atvinnuuppbyggingu en vandamálið sé að á þeim fimm árum, sem hann hefur komið að þessu verkefni, hafi hann ekki rekist á neitt verkefni sem jafnist á við byggingu álvers á vegum Alcoa. Ekkert annað verkefni virðist skapa jafn mörg störf eða vera jafn umhverfisvænt eða hafa sama fjárhagslega styrk.

„Við höfum enga fordóma fyrir öðrum möguleikum, finnst að mörgu leyti tilhugsunin um fleiri en eitt fyrirtæki bara spennandi. Við höfum skoðað alla kosti með jákvæðum hug. En verkefnið þarf þó að vera af þeirri stærð að það geti staðið undir nauðsynlegri uppbyggingu á innviðum svo sem línulögnum. Þar erum við að tala um orkukaupanda eða kaupendur sem þurfa um 250 megavött af orku og möguleika á að skapa 500-700 störf.“

Orkan skapi störf

Jón Helgi heldur reyndar að þær breytingar sem Landsvirkjun hefur viljað gera á samningum, í þá veru að kaupandinn og Landsvirkjun skipti með sér áhættu af því hvort næg orka næst, séu skynsamlegar og hægt sé að semja um þær. „Ég vek reyndar athygli á því að nú er ekki lengur hægt að flytja orku inn á svæðið tímabundið eins og rætt var um í upphafi. Við erum auðvitað sammála því að sem hæst verð fáist fyrir orkuna en leggjum meiri áherslu á það að orkan skapi störf og umsvif í okkar samfélagi þannig að samfélag í Þingeyjarsýslum fái viðspyrnu til vaxtar og endurreisnar.“

Jón Helgi telur líklegt að mun meira orkumagn sé á háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum heldur en 400 megavött og bendir á, að búið er að klára umhverfisferla eða umhverfismöt fyrir um 525 megawöttum af orku í Þingeyjarsýslum.

„Vitaskuld er runnið upp fyrir okkur að samið hafi verið um það að álver á Bakka yrði ekki byggt þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð. Það er hundfúlt að hlaupa alltaf á vegg þegar þetta verkefni kemur upp. Heiðarlegra hefði verið að segja okkur það í upphafi. Flest gerum við ráð fyrir að þurfa að sitja af okkur núverandi ríkisstjórn áður en nokkuð gerist í framkvæmdum í Þingeyjarsýslum.“

En mótlætið herðir menn bara, að sögn Jóns Helga, í þeirri ætlan að orkan í Þingeyjarsýslum verði nýtt til að byggja upp atvinnu þar og breyta áratuga hnignun í vöxt. „Tvö ár eru ekki svo langur tími í þingeyskri sögu. Eitt er þó klárt, reyni menn að nýta orkuna án þess að þessir hagsmunir okkar séu tryggðir, þá munu menn upplifa nýja Laxárdeilu. Þar sem hefðbundnum baráttuaðferðum Þingeyinga verður beitt af fullri hörku!“"


Norðurland er greinilega ekki efst á dagskrá hjá forsætisráðherra

Smá tilvitnun í frétt af svörum forsætisráðherra um undirbúningi framkvæmda: 

"Þá sagði hún  að ef litið væri til þeirra framkvæmda, sem væru í undirbúningi og ef sátt næðist  um fjármögnun þeirra, svo sem í vegamálum, þá yrðu fljótlega sköpuð 2200-2300 ársverk og 500-600 bein varanleg störf við framtíðarrekstur. Nefndi Jóhanna aukna afkastagetu álversins í Straumsvík, framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun, byggingu kísilmálmverksmiðju í Helguvík, hreinkísilverksmiðju í Grindavík og natríumklóratverksmiðju á Grundartanga."

 Norðurlandið er greinilega ekki efst á dagskrá hjá forsætisráðherra frekar en fyrri daginn, eiginlega ekki til.


mbl.is Boðar 2.200 ársverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrg afstaða forystu Sjálfstæðisflokksins til Icesave

Eitt ömurlegasta mál sem rekið hefur á fjörur íslendinga er Icesave. Þessi löglausa krafa hollendinga og breta um að íslendingar tækju á sig allan kostnað vegna Icesave. Krafa sem kom beint í kjölfarið á beitingu  hryðjuverkalaga á íslensk fyrirtæki í Bretlandi. Ekki bætti úr skák að þessar tvær þjóðir beittu Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fyrir sig sem innheimtustofnun.

Versti kaflinn á þessu máli var þó fyrsti samningurinn sem gerður var um Icesave. Aldrei hefur þjóðin orðið vitni að álíka vanhæfni og aumingjaskap við vörslu íslenskra hagsmuna. Löngunin til að koma þjóðinni inn í Evrópusambandið virðist hafa rænt Samfylkinguna öllu viti og getuleysi forystumanna Vinstri grænna var algjört. Þeir sem börðust gegn samningnum og höfðu sigur eiga ævarandi þakklæti skilið.

Núverandi samningur er þó mun betri en sá sem fyrst var gerður enda fóru nú fyrir okkur samningamenn með getu og vilja til að nýta þá stöðu sem sterk lagaleg staða gaf okkur. Þó auðvitað sé beiskt að kyngja því að almenningur greiði skuldir einkafyrirtækis þá er ekki hægt að neita því að samningurinn eyðir óvissu. Jafnvel þótt miklar líkur séu á sigri í dómsmáli yrði kostnaðurinn óheyrilegur ef málið myndi tapast. Í því liggur óvissan og vandræðin við að fá erlenda fjármögnun.

Fyrir okkur í Þingeyjarsýslum skiptir miklu að auka möguleika á fjármögnun stórverkefna. Þótt verkefnið hjá okkur séu að mestu stopp vegna afstöðu ríkisstjórnarinnar þá fækkar í það minnst afsökunum um að gera ekki neitt um eina við það að gengið er frá samningi um Icesave.

Bjarni fær svo prik fyrir að taka afstöðu sem hann telur þjóna hagsmunum íslensku þjóðarinnar frekar en að nýta tækifærið til að veita ríkisstjórninni verðskuldað högg. 

 


Hvurslags rugl er þetta orðið með Gjástykki

Ríkisfyrirtækið Landsvirkjun sótti um  rannsóknaleyfi í Gjástykki og fékk eftir að sveitarfélögin og landeigendur höfðu veitt jákvæða umsögn.  

Á vísi kemur fram að: "Orkustofnun tekur meðal annars undir þau rök Landsvirkjunar að stefna stjórnvalda til friðlýsingar hafi staðið til um margra ára skeið án þess að friðlýsing hafi verið samþykkt. Þá hafi Landsvirkjun í góðri trú efnt til fjárfestinga á svæðinu á grundvelli fyrra rannsóknarleyfis frá árinu 2007 og haft réttmætar væntingar um að það fengist á ný.

Ennfremur hafi umhverfisráðuneytið fyrir sex árum ekki gert athugasemdir við þá rannsóknaráætlun, sem fól í sér boranir, og Umhverfisstofnun hafi á þeim tíma heldur ekki talið að fyrirhugaðar rannsóknir væru líklegar til að valda miklum umhverfisáhrifum." Tilvitnun líkur.

Heimamenn fögnuðu í hálfan dag en þá kom umhverfisráðherra og svo iðnaðarráðherra, báðar sammála um friðlýsingu Gjástykkis enda stefna ríkisstjórnarinnar. Klukkutíma seinna lyppaðist Landsvirkjun.

 Nú er klárt að sveitarfélögin þrjú sem Gjástykki liggur í og landeigendur hafa ekki áhuga á friðlýsingu. Sú staða er skýr og ef ríkisvaldið hyggst friðlýsa svæðið hlýtur það að þurfa að leysa það til sín með öllum þeim kostnaði sem af því hlýst. Skipulagi svæðisins er einnig skýrt en þar er gert ráð fyrir orkuvinnslu á afmörkuðu svæði Gjástykkis. 

 Allir sjá auðvitað að tilgangur friðlýsingarinnar er að minnka mögulegt framboð af orku frá háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum og minnka þannig möguleika á byggingu álvers í Þingeyjarsýslum.

Það er hinsvegar mér algjörlega á huldu hvers vegna ríkisfyrirtækið Landsvirkjun sækir um  tilraunaleyfi ef þeir ætla sér ekki að nýta sér það vegna mótmæla ríkisstjórnar. Hvernig hefði verið að ræða þetta fyrst við ríkisstjórnina og í framhaldinu sleppa því að óska eftir tilraunaleyfi ef ekki er stuðningur við það. Samband Landsvirkjunar og ríkisstjórnarinnar virðist nú stundum nokkuð traust.

 Svo mikið veit ég að stuðningur sveitarfélagsins Norðurþings við rannsóknaleyfi til Landsvirkjunar var byggður á því að félagið myndi rannsaka svæðið. Ef það getur það ekki er eðlilegt að rannsóknaleyfinu sé skilað, sveitarfélögin taki við því og gangi í þær rannsóknir sem nauðsynlegar eru strax í sumar.

Því miður er það að renna upp fyrir heimamönnum betur og betur að meðan núverandi ríkisstjórn er við völd með öll sín innanmein, mun ekkert gerast á hennar vegum sem leiða mun til uppbyggingar í kringum orkuiðnað í Þingeyjarsýslum. Því miður fyrir land og þjóð.


Ályktun byggðaráðs Norðurþings um orkufrekan iðnað

"Orkufrekur iðnaður


Á undaförnum árum hafa staðið yfir rannsóknir á háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum með það að markmiði að efla atvinnustig í héraði. Á grundvelli þessa var farið í skipulagsvinnu sem leiddi til að skipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum var staðfest.


Í október 2009 var undirrituð viljayfirlýsing milli Iðnaðarráðuneytisins fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands, Skútustaðahrepps, Þingeyjarsveitar og Norðurþings. Þar er kveðið á um að skipuð verður verkefnisstjórn sem mun bera ábyrgð á leit að öðrum mögulegum samstarfsaðilum um atvinnuuppbyggingu. 

Í verkefnisstjórninni  eiga sæti fulltrúar frá Norðurþingi, Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit, Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga, iðnaðarráðuneytinu og Landsvirkjun/Þeistareykir ehf.  Gert var ráð fyrir að fyrstu athugun á mögulegum samstarfsaðilum yrði klár fyrir 1. apríl 2010 og þar á eftir átti að nýta svo tímann fram til 1. október 2010 til nánari viðræðna og samningagerðar við þá sem til greina koma. Verkefnisstjórnin skilaði framvindu skýrslu þann 5. maí 2010.


Eitt af grundvallar atriðum þessarar vinnu hefur verið samstarf og samvinna með ríkisfyrirtækinu Landsvirkjun sem m.a. hefur fengið aðgang og nýtingarrétt á háhitasvæðum í héraði. Samstarfi sem nauðsynlegt er að sé byggt á heilindum og góðu upplýsingaflæði aðila á milli.

Þann 23. desember sl. birtist á vef Landsvirkjunar að Landsvirkjun og Carbon Recycling International (CRI) hafa undirritað viljayfirlýsingu um að meta hagkvæmni þess að reisa metanólverksmiðju í nágrenni jarðvarmavirkjunar Landsvirkjunar við Kröflu á Norðausturlandi.

Byggðarráð Norðurþings fagnar því að verið sé að skoða möguleika á nýtingu jarðvarma við Kröfluvirkjun en harmar jafnframt þau vinnubrögð Landsvirkjunar, að samstarfsaðilar um orkunýtingu í Þingeyjarsýslum og verkefnisstjórn hafi ekki verið upplýsti um stöðu mála.  Að auki er gerð krafa um að fá upplýsingar um hvort framangreindar fyrirætlanir hafi áhrif á önnur verkefni sem unnið er að í Þingeyjarsýslum.

Það er von byggðarráðs Norðurþings að vinnubrögð af hálfu ríkisfyrirtækisins Landsvirkjunar verði tekin til endurskoðunar, enda hefur verið stefnt að samstarfi marga áratugi fram í tímann."

 

Svo mörg voru þau orð.
 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband